Fyrirtækið
M.V.G Skart er með aðsetur í heimahúsi í Reykjavík. Þú getur haft samband í gegnum vestmann1987@gmail.com
Afhending vöru
Frí heimsending er á flestum vörum nema annað sé tekið fram
Allar pantanir eru afgreiddar á næstu tveimur sólarhringum eftir pöntun, við reynum að afgreiða allar pantanir samdægurs. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband
Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. M.V.G Skart ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá M.V.G Skart til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% vsk
Að skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
M.V.G Skart fer eftir lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.